Mæðrastyrksnefnd er starfrækt af 8 kvenfélögum í Reykjavík.
 
Það eru Kvenréttindafélag Íslands, Húsmæðrafélag Reykjavíkur, Félag háskólakvenna og kvenstúdentafélagið, Hvítabandið, Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna, Kvenfélag framsóknarkvenna, Kvenfélag Alþýðuflokksins og Thorvaldsensfélagið.

Þrír fulltrúar frá hverju félagi eru í nefndinni og er vinnan sjálfboðaliðastörf.