Hinn 27. febrúar 1928 varð hörmulegt sjóslys þegar togarinn Jón forseti strandaði út af Stafnesi. Fimmtán skipverjar drukknuðu en tíu komust af. Þá var hugur almennings opinn fyrir því að koma ekkjum og föðurlausum börnum til hjálpar. Hinn 20. apríl 1928 komu 22 konur, fulltrúar frá 10 kvenfélögum, saman á fund að Kirkjutorgi 4 í Reykjavík og var Mæðrastyrksnefndin stofnuð á þeim fundi. Laufey Valdimarsdóttir var kjörin formaður og sama vor opnaði nefndin skrifstofu í húsi Guðspekifélagsins í Reykjavík.

 

Eitt fyrsta verkefni nefndarinnar var að vinna að því að allar einstæðar mæður, ekkjur, ógiftar og fráskildar, fengju rétt til að fá greidd meðlög með börnum sínum. Jafnframt var unnið að því að þær fengju mæðralaun sem nægðu til að tryggja afkomu heimilanna.

 

Árið 1939 var nefndin endurskipulögð og gerð að sjálfstæðri stofnun. Er nefndin nú samstarfsverkefni 8 kvenfélaga sem eru: Kvenréttindafélag Íslands, Hvítabandið, Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna, Félag háskólakvenna, Kvenfélag framsóknarkvenna, Kvenfélag Alþýðuflokksins, Thorvaldsensfélagið og Húsmæðrafélag Reykjavíkur.

 

Núverandi stjórn Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er þannig skipuð:

Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður

Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir, varaformaður

Anna Kristjánsdóttir, ritari

Margrét K. Sigurðardóttir, fjármálastjóri

Aðalheiður Frantzdóttir, meðstjórnandi

Steinunn V. Jónsdóttir, meðstjórnandi

Guðrún Björgvinsdóttir, meðstjórnandi

Áslaug Brynjólfsdóttir, meðstjórnandi

 

Framkvæmdastjóri nefndarinnar er Aðalheiður Frantzdóttir.

 

Saga Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er saga um baráttu fyrir réttlátri og mannúðlegri félagsmálalöggjöf. Starf nefndarinnar hefur haft mikil áhrif, jafnt á almenningsálitið sem á löggjöfina og framkvæmd laganna. Starf nefndarinnar hefur breyst í áranna rás og í takt við tímann. Stöðugt fjölgar heimsóknum þeirra sem leita til nefndarinnar. Það eru ekki lengur aðeins einstæðar mæður, við hafa bæst karlmenn, bæði einstæðir og með forsjá barna, en einnig er áberandi hve öryrkjum og eldri borgurum hefur fjölgað á síðustu árum.

 

Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur  er að Hátúni 12 b.

Afgreiðsla á mat, fatnaði o.fl. er á miðvikudögum kl. 14-17, en aðra virka daga er skrifstofan opin kl. 10-15.